20. október 2007 klukkan 02:16
Já já ég ætla að hripa niður hérna skoðanir mínar þegar ég er bitur eða glaður.
Aðdáendur sveitapilts geta tekið gleði sína á ný því nú verður bloggað!!
Eiríkur Már Rúnarsson
05. febrúar 2007 klukkan 20:38
Já nú er ég algjörlega hættur, ég bara nenni þessu alls ekki lengur. Enn og aftur þó takk þið sem lásuð þetta helvítis rugl alltaf hreint.
Eiríkur Már Rúnarsson
03. febrúar 2007 klukkan 08:53
Ég er hér á næturvaktinni og leiðist mjög mikið , svo mikið að ég fór að lesa ofan í tappann á Egils sódavatnsflöskunni minni og sá mér til mikillar undrunar að í tappanum stendur Alcoa og merki Alcoa við hliðina!! Hvað á það að fyrirstilla? Eru þetta leynd auglýsing sem á að síast inní hausinn á fólki sem leiðist í vinnunni og fer að lesa ofan í tappann sinn??? Eru Alcoa og Egils í einhversskonar samstarfi???? Kæmi mér ekkert á óvart þar sem bæði þessi fyrirtæki eru byggð upp á skít og hlandi.
Eiríkur Már Rúnarsson
01. febrúar 2007 klukkan 10:02
Eiríkur Már Rúnarsson
30. janúar 2007 klukkan 15:51
Jæja hvað segiði? Þorrablótið í ár er eitthvað það eftirminnilegasta sem ég hef farið á. Ég hélt að Friðrik gæti ekki toppað sjálfan sig frá í fyrra en það gerði hann og miklu betur. Hann hafði greinilega sett mikla vinnu í textasmíðar og skipulag. Húrra Friðrik!!!!!
Skemmtinefndin var einnig stórkostleg og ljóst að sumir ættu frekar að láta ljós sitt skína í fjölum leikhússa en í vinnum eða skólum sínum. Leyfum svo fólki bara að geta í eyðurnar með þetta.
Elli Tomm var drukknasti maðurinn á svæðinu á eftir Halldóri Val sem gerði sér lítið fyrir og rauk út og datt í götuna :).
En að rannsókninni góðu. Það er greinilegt að pælingin mín er rétt og mér sýnist að alveg 80% karlmanna sofi nær glugganum og ég hef þá útskýringu öfugt við Elías frænda minn að innbrotsþjófar og nauðgarar komi heldur inn um gluggann og að þetta séu ósjálfráð viðbrögð karlmannsins til að verja Gullið sitt.
Eiríkur Már Rúnarsson
27. janúar 2007 klukkan 00:32
Afhverju er það?????? Þarf Sigga storm til að segja krakkanum að klæða sig vel?? Hvað varð um uppeldið???
Og afhverju eru krakkarnir svona feitir á myndunum????? Ég veit ekki hvert ég myndi flýja ef ég mætti heilum hópi af svona digrum krökkum sem geta ekki hreyft hausinn en líta einstaka sinnum til hliðanna með augunum.
Eiríkur Már Rúnarsson
24. janúar 2007 klukkan 01:31
Ég ætla að gera alvarlega rannsókn sem getur síðan orðið mannfræðingum innblástur.
Því bið ég ykkur sem allra flest að svara þessari spurningu,, Hvort ykkar sefur nær glugganum í hjónaherbergi þínu?" Það sem ég meina er það að það er algjör hending held ég ef konan sefur nær glugganum en ekki karlinn.
Koma svo og svara þessu og þið getið einnig sagt hvernig foreldrar ykkar. ömmur og afar og vinir eða hverjir sem eru sofa.
Eiríkur Már Rúnarsson
19. janúar 2007 klukkan 11:14
2007
Gvendur í Byrginu
Hann Gvendur í Byrginu var gamall perrakall
og bondage var hans fró.
Hann stundaði stóðlífi og kvennafar og svall.
Í Byrginu hann bjó.
Og Guðs orð hann boðaði í bland við blíðuhót,
úr ritningunni las.
Sitt sæði kvað Gvendur vera allra meina bót,
sig sjálfan Messías.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla,
tvær í einu þegar vel gaf.
Greip í Lille ven á milli guðspjalla
og dag né nótt hann varla svaf.
Og Ríkið sá Gvendi gamla alltaf fyrir fé,
jafnóðum eydd´ann því.
Hann keypti sér gúmmíkylfu og túttuklemmu úr tré
og leðurfötin ný.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
En Kompás í leikinn skarst og vildi skemma allt,
og fletti ofan af.
Nú er Gvendur í kuldann kominn út og þar er kalt
hann Byrgið yfirgaf.
Hann flengdi smástelpur vikuna alla...
Eiríkur Már Rúnarsson
18. janúar 2007 klukkan 05:48
Til Kringlunnar. Jólin eru BÚIN !!!!!!! 6. jan eru lok jólanna og þess vegna er það kallað þrettándinn you stupid people. Takið niður skrautið og skammist ykkar fégráðugu andskotar og leyfið fólki að njóta jólanna eins og á að gera án þess að það missi marks.
Og þið feministakellingar !!! Hvað er að ykkur???????? Röflandi yfir kossakeppnum og playboykvöldum!! Þó svo að einhverjar fallegar konur vilji taka þátt í þessu ÓTILNEYDDAR verið þið þá ekki að væla þó að þið nennið ekki að raka ykkur að neðan.
Eiríkur Már Rúnarsson
13. janúar 2007 klukkan 11:59
Yes you heard me, ég er búinn að gleyma hverjum ég lánaði Líf myndirnar mínar þ.e Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf..... þeirra er sárt saknað svo vinsamlega SKILAÐU MYNDUNUM!!!!!!
Eiríkur Már Rúnarsson